Tónfræði – Nótnalestur

Nótnalestur – Hraðferð

6 vikna námskeið fyrir fólk með bakgrunn í tónlist. Kennt í tvo tíma vikulega á fimmtudögum kl. 17-19. Verð með námsefni 35.000.-  fæst niðurgreitt af stéttarfélögum.

  • Upprifjun
  • Hröð yfirferð
  • Hentar söngnemum og kórfólki með reynslu
  • Grunnur og framhald í einu námskeiði

Tónfræði og nótnalesturnámskeið fyrir byrjendur

ATH! Námskeiðið er aðeins kennt einu sinni á ári á haustönn á miðvikudögum kl. 17. Námskeiðið hefst 12. september.

Námskeiðið stendur yfir í 12 vikur, kennt vikulega í tvo og hálfan tíma.
Verð 48.000 með námsefni og prófum og fæst niðurgreitt af helstu stéttarfélögum.

Á námskeiðinu verður eftirfarandi kennt:

  • grunnur í tónfræði
  • að þekkja nótur og takt
  • að greina tóntegundir og takttegundir
  • að telja rétt, greina og syngja tónbil og lög af blaði
  • öll helstu tónlistarhugtök.

Námskeiðið hentar:

  • Kórsöngvurum
  • Söngnemendum
  • Áhugafólki um tónlist og uppbyggingu hennar
  • Sem upprifjun fyrir fólk með bakgrunn í tónlist, t.d. úr barnaskóla

Tónfræðinámskeið 2 – Vorönn 2013

  • Framhald af tónfræði og nótnalestursnámskeiði fyrir byrjendur.
  • Nemendur ljúka allri tónfræði þ.e.  4. 5. og 6. stigi.

Námskeiðið stendur yfir í 14. vikur, kennt er vikulega í tvo og hálfan tíma. Verð 54.000 með námsefni og prófum. Kennt á vorönn 2013.