Sönghópurinn og ég erum á fullu að undirbúa dagskrá fyrir Menningarnótt 18. ágúst.
Það er orðin hefð hjá okkur að koma fram á þessum skemmtilega degi og í ár syngjum við á tveimur stöðum. Fyrst tökum við áskorum Garðars Cortez um að syngja við Söngskólann í Reykjavík milli kl. 15 og 16. Síðan flytjum við söngdagskrá í Fríkirkjunni kl. 17.
Dagskráin okkar í ár er blanda af þekktum dægurlögum og lögum úr söngleikjum.