Í dag er Menningarnótt sem er einn af hápunktum
í starfi mínu! Þar kemur Sönghópurinn minn fram með mér, – ég kalla þau söngfélaga mína, en eftir 4 ára starfsemi hópsins, hefur ekki enn fundist viðeigandi nafn á hann!
Við flytjum í dag lög úr söngleikjum, negrasálma og þekkt dægurlög. Ég leyfi mér að fullyrða að hópurinn hefur aldrei verið betri.
Gróa Hreinsdóttir spilar með á píanó.
Frítt inn og allir velkomnir