Spectrum í Hörpu á Menningarnótt

Á Menningarnótt í Hörpu 2015

  Á Menningarnótt í Hörpu 2015 

Spectrum syngur í Hörpuhorninu á Menningarnótt kl. 15.30.

Það er orðinn árlegur viðburður hjá Spectrum að syngja á Menningarnótt, enda hvar ætti þessi kraftmikli hópur betur heima en þar? Við syngjum blandaða dagskrá sem að hluta til verður farið með í keppni í haust í La Calella á Spáni.

Stingum af – með Spectrum

Spectrum í SeltjarnarneskirkjuNú er komið að árlegum vortónleikum Spectrum. Að þessu sinni verður dagskráin í Guðríðarkirkju, með yfirskriftinni Stingum af – með Spectrum. Er það tilvísun í eitt af lögunum sem við flytjum; Stingum af með Mugison. Hljóðfæraleikarar eru Vignir Þór á píanó, Gunnar Hrafnsson á bassa, Ársæll Másson á gítar og Þorvaldur Ingveldarsson á slagverk. Eftir tónleikana verða veitingar í boði kórsins!