Rödd á nýju ári!

Nú er nýtt söngár hafið og tilvalið að láta verða af því að syngja.

Það er merkilegt og ánægjulegt hvað blundar í mörgum að syngja. Sumir hafa ekki þorað, en vinna persónulegan sigur með því einu að mæta í fyrsta söngtímann. Einhverjir fengu gjafabréf og er þar með ýtt af sínum nánustu af stað. Aðrir eru í kór og finnst gaman, en vilja kanske fá meiri leiðsögn.  Svo eru þeir sem þurfa að læra betur að beita talrödd sinni, því það er heilmikið verkefni fyrir marga sem þurfa t.d. að standa fyrir framan fjölda manns og tala, en vera ekki sáttir við röddina sína. Ég er svo heppin að fá að kenna fólki úr öllum áttum, byrjendum og lengra komnum í tali og söng!